Inside the fire

Jæja þá er 1 vikan búin Wizard ég segi 1 vikan af því að ég missti mig aðeins í vinnutörn og þá fór allt í fuck. þegar ég varð of þreytt varð mér eiginlega alveg sama um allt sem kallaðist mataræði, hreyfing og vítamín. svo 1 vikan er búin og ég er bara mjög ánægð Grin

þetta er sumarfrís vika svo ég náði að slaka á og hvíla mig sem var e-ð sem ég þurfti að gera, ekkert stress og engin leiðindi. auðvitað var þetta ekki fullkomin vika en ég myndi samt alveg gefa henni 8,5 í heildina Smile sem er bara nokkuð gott. Ég átti svolítið von á því að ég myndi missa mig í ógeð, sukk og svínarý en einhvern veginn náði ég að halda mér nokkurn veginn á beinu brautinni. Sykurlöngunin náði reyndar aðeins yfirhöndinni á þriðjudagskvöldið EN þetta er vikan fyrir "Fló frænku" svo 1 kvöld finnst mér bara nokkuð gott miðað við vennjulega þá einkennist vikan fyrir þennan "skemmtilega" tíma af nammi áti, súkkulaði og meira súkkulaði er það eina sem kemst að svo ég er bara nokkuð ánægð.

Ég finn það líka á sjálfri mér að æfingarnar eru að hjálpa með fyrirtíðarspennuna. Var mikið betri í skapinu .... well það hjálpar örugglega til að ég er í fríi en samt, ég verð ekki pirruð útaf öllu og þó ég hafi tekið smá kast á Davíð á Miðvikudaginn þá var það ekki alveg mér að kenna Wink

Á morgun er laugardagur sem þýðir nammidagur og ég er búin að plana alveg hvað ég ætla að gera þá sem mér persónulega finnst betra því ef ég plana og ákveð nákvæmlega hvað ég ætla að borða þá er ekkert vesen þegar ég fer í búðina og ég enda ekki með alltof alltof mikið magn sem ég enda svo á að borða á sunnudeginum. Svo er það bara ný vika á sunnudaginn. Ég er búin að plana æfingarnar fyrir næstu viku svo ég held bara áfram á þrjóskunni LoL

ALDREI GEFAST UPP SmileDevil


It´s times like these we learn to live again

Hausinn á mér er fullur af hugmyndum .... endalausar pælingar, hugsanir, skipuleggingar..... i´ve got my voises again i´m so happy LoL er búin að vera ótrúlega dofin og stífluð undanfarið. þetta hefur verið einstaklega erfiður tími fyrir fjölskylduna mína og ég eins og aðrir fór ekki varhluta af því. við misstum því miður alveg einstaklega frábæran og yndislegan dreng í blóma lífsins og þetta er það hræðilegasta sem ég lent í á ævinni.

hann er bara búinn að vera svo ótrúlega mikill innblástur fyrir mig. ég er svo stolt af honum fyrir að vera svona mikil hetja ...... aldrei að gefast upp. sama hvað gerist þá á maður aldrei að gefast upp og maður á að berjast sama hvað. og það er nákvæmlega það sem ég hef ákveðið að gera. nú verður enginn miskun sýnd. ég get nefninlega verið alveg ótrúlega mikil gunga "ææiii nei þetta er of erfitt, nei ég er ekki nógu góð, ég á aldrei eftir að geta þetta". ég hef ákveðið að eyða þessum orðum úr mínum orðaforða. ef ég get gert litla frænda helmingi eins stoltan af mér og ég er af honum þá verður það yndislegt.

ég er nefninlega svo mikið barn í mér að ég trúi því alveg að himnaríki sé til .... svona eins og í teiknimyndunum .... hvítir kuflar, hörpur, fullt af skýjum og stórir fluffy vængir Grin ég trúi því líka að þegar ég kem þanngað þá eigi ég eftir að hitta kurt cobain og jimi hendrix við gullnahliðið og fara á djammið með freddy mercury Tounge .... ég og litli frændi eigum eftir að hittast aftur og rífast um fótbolta og tala um bíla.....því ég veit alveg hvað kraftpúst er Cool manneskjan sem vissi ekki hvað hestafl var fyrir 3 árum síðan.

ég held samt að fólk geri þetta þegar það verður fyrir missi, maður stokkar upp hjá sér. lífið er nefninlega stutt og maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér .... í bókstaflegri merkingu. svo núna eru allar raddirnar mínar að ráðleggja mér og skipa mér fyrir.... hljómar stundum eins og fuglabjarg en hey.... ég saknaði þeirra LoL

ég ætla aldrei að gefast upp aftur.

Blessuð sé minning þín elsku frændi. því verður sárt saknað.

 


sarah says it´s cool

jæja jæja jæja ....

sko ég gaf það hérna í skyn fyrir einhverju síðan að ég og davíð værum að fara út í svolítið stóra hluti saman. sem sagt að fjárfesta í íbúð .... EN nú hafa örlögin gripið í taumana enn á ný og sagt okkur að okkar tími sé ekki alveg kominn strax. við sem sagt fengum að vera ár í viðbót í íbúðinni sem við erum í núna og ætlum að þiggja það. verð nú samt að segja að ég er svolítið spæld því mér var mikið farið að hlakka til að komast úr þessu kommúnista veldi sem ég bý í !!! það má ekki hengja neitt á veggina, leiðbeiningar um hvernig þú átt að skúra gólfið, ekki gera neitt í rauninni. ég er bara komin með alveg upp í kok á þessari hvítu íbúð !!!

fólkið á efri hæðinni er líka ekki að hjálpa til. þeim dettur alltaf í hug að fara að þvo um miðnætti á kvöldin og það heyrist ótrúlega mikið niður til okkar og gerir mig alveg fuck pirraða. svo er stelpan sem býr beint fyrir ofan mig ekki alveg að fatta að það eru til öðruvísi skór en bara hæla skór og hún trampar um á hælunum kvölds og morgna og vekur alla í húsinu. AAAAAAAAARRRRRRRRRRGGGGGGGGG hvað mig langar stundum til að öskra á þau !!!!

*andvarp* svo eru prófin að fara að byrja sem er fínt það þýðir að þessi önn er að verða búin LoL en ég get samt ekki sagt að próf séu neitt sérstakt gleðiefni fyrir mig. ég er farin að þjást af alvarlegri prófkvíða en áður. verð öll mikið mikið stressaðri og á stundum rosalega erfitt með að einbeitta mér að því að læra. yfirmanns druslan mín týmdi ekki einu sinni að gefa mér frí á prófdaginn minn svo ég gæti lesið..... hvað er það ?! ég er ekki að biðja um frí bara til þess að vera í fríi og fá langar helgi (bað um frí 2 maí sem er föstudagur) ég er að fara í fucking próf og þarf að nota daginn í að lesa og undirbúa mig .... ef ég frétti að einhver í deildinni minni hafi fengið frí þennan dag þá á ég fyrst eftir að snappa Devil 

fyrir utan þessar óánægjur mínar er ég tiltörlega sátt við menn og mýs Grin keypti mér skó í dag og ógeðslega dýrar nærbuxur um daginn ... í alvöru þetta eru dýrustu nærbuxur sem ég hef keypt mér á ævinni EN ó my god hvað ég dýrka þær InLove ég er búin að ákveða það að ég ætla alltaf að kaupa mér 2 flíkur á mánuði. það er ekkert gaman að vera alltaf að druslast í sömu fötunum og það er ekki eins og ég sé verslandi í karen millen svo þetta ætti að vera í lagi LoL

annars eru allir að standa sig svo ótrúlega vel og sumir eru svo yndislega frábærlega góð fyrirmynd fyrir aðra því maður má aldrei aldrei aldrei gefast upp ... það er bara ekki inni í myndinni og mér finnst það svo ótrúlegt og á sama tíma yndislegt Tounge

jæja uppvaskið bíður


I fell in love with the girl at the rockshow

Jæja jæja góðir hálsar nú hef ég sko fréttir að færa ................................................................................................................. ÉG ER BÚIN AÐ FÁ FARTÖLVU !!!!!!! LoL ég hef aldrei á ævinni átt tölvu áður svo ég er stoltari en allt í heiminum LoL helsta spotið hjá mér þessa dagana er að sitja inni í stofu og bögga davíð á msn þegar hann er í tölvunni í næsta herbergi Devil ég get alveg verið pínu pirrandi ég veit

sko the thing is að nú er tíminn kominn !!!! TÍMI MINN ER KOMINN og ég held að ég sé loksins loksins að ná áttum eftir allan ruglinginn, bullið, dramað á áföllin sem dundu yfir síðustu ár. ég finn að ég nenni ekki að standa í einhverju bulli og ef fólk getur ekki hunskast til að segja mér hvað málið er þá getur það bara átt sig. ég get ekki lagað e-ð sem ég veit ekki hvað er. hef svona á tilfiningunni að ég sé loksins loksins orðin fullorðin Grin talandi um það þá fór ég í heimsókn til Gullýar um daginn og ég er ekkert að fara að dissa neinn eða neitt en þar voru ákveðnar samræður mjög lengi í gangi í einu horninu hver væri búin að ríða hverjum og hvort þessi væri nú ekki örugglega búin að ríða þessum og hver vill ríða mér ? en þér ? og svo framvegis ..... ekki að ég hafi verið að hlusta á þessar samræður neitt sérstaklega þar sem það var ekki verið að tala við mig þá fékk þetta mig til að hugsa þegar ég kom heim. ætli þessar kynlífspælingar fylgi því að vera á lausu, að vera kvennmaður eða ætli sumt fólk breytist aldrei ? ég skal alveg fúslega játa það að á tímabili þurfti ég alltaf að hafa það á hreinu hver væri búin að sofa hjá hverjum og afhverju..... en núna..... þá er mér einhvern veginn svo slétt sama ..... á meðan það er ekki minn maður þá má fólk bara gera það sem það vill.

mér fannst þetta allavega fyndið. það er líka fyndið að hitta fólk sem maður hefur ekki hitt lengi ... og pæla í því .... heehhe ég er stektari en allt en ég fæ kick út úr því Wink hvernig það hagar sér, hvað það hefur að segja og hvort það hafi breyst mikið síðan ég hitti það síðast.

ég lenti í því á starfsmannafundi um daginn að yfirmaður í deildinni okkar var að kenna vandræðum póstsins á útlendinga. fyrir þá sem ekki vita er búið að vera að taka íslandspóst í rassgatið undanfarnar vikur og vitiði hvað ég held að það sé kominn tími til !!!! mér finnst persónulega gaman að skoða ruslpóstinn minn en ef ég hefði orðið mér út um límmiða sem afþakkar svoleiðis póst mjög pennt og því væri ekki sinnt og svo fengi ég bara einhvern skít frá forstjórum í póstinum þá yrði ég brjáluð. hvernig geta þessir menn réttlætt það fyrir sjálfum sér að neita fólki um þessa þjónustu þegar þeir hafa enginn almennilega svör handa fólki ? svo er fólk að kvarta yfir bréfberum, bréf eru ekki að koma á réttum tíma og svo framvegis.... flóðgáttin opnaðist og nú er fólk að tína allt til sem það getur. ég er samt algerlega á móti alhæfingum eins og þeim sem þessi ákveðni yfirmaður var að ausa yfir okkur á þessum fundi. að útlendingar kynnu ekki að lesa, að þeim væri alveg sama, latir og svo framvegis. bara í deildinni minni eru svona um það bil 10 útlendingar sem allir sátu þennan ákveðna fund og það sást mjög vel að þeim var ekki skemmt. deildarstjóranum yfir deildinni var heldur ekki skemmt og svaraði hún rasistanum fullum hálsi EN nú spyr ég hvernig stendur á því að maður sem hefur þessa skoðun á "útlendingum", hefur fengið endalaust margar kvartanir fyrir að vera ömurlegur fýlupoki og ég er ekki að grínast þegar þú sérð þennan mann það fyrsta sem þú hugsar er "en sá fýlupoki" áður en hann hefur sagt e-ð. afhverju er svona einstaklingur gerður að yfirmanni ?!

afhverju er svona mikið í þessum heimi sem ég ekki skil ?!


Hvað um þig og mig ..... ?!

ég er reið, ringluð, sorgmædd, dofin og miklu meira reið og það er ekkert sem neinn getur gert fyrir mig .............


Put the lime in the coconut

well well well... okey okey það hafa heyrst raddir um að ég sé að taka þessu að vera 24 svolítið of alvarlega (ENDALOK ALHEIMSINS)...... og mig langar að segja þessum ákveðnu einstaklingum .... þú hefur algerlega rétt fyrir þér !!!! Blush

ég hef samt verið að hugsa í dag.... já ég veit ég sagðist ekki ætla að of hugsa málið en þegar maður er veikur heima hefur maður ekki mikið að gera NEMA horfa á Hells Kitchen Cool .... mér finnst meiri munur á að fara frá 23 upp í 24 heldur en að fara frá 22 upp í 23 what´s up with that ?!

las stjörnuspána mína í dag og hún sagði að þegar ég ætti erfitt með að ákveða í hvaða átt ég ætlaði að fara þá ætti ég að hugsa að ég væri eins og vatn, í hvaða formi sem það er (snjór, vatn, gufa) þá getur það alltaf aðlagast. ég trúi ekki mikið á svona stjörnuspár og dót en stundum hitta þær alveg óendanlega mikið í mark. hef verið að velta því fyrir mér undanfarið að málið sé að ég þori ekki að taka af skarið og fara þangað sem mig langar til að fara af því að ég hef ekki nógu mikla trú á mér. það þarf auðvitað að breytast og það strax !!!! og ég hef ákveðið það að ef það er e-ð tækifæri sem ég sé sem heillar mig þó að það sé ekki nema bara pínu þá ætla ég að stökkva, því ég hef alls ekki verið nógu dugleg í því. það gerist auðvitað ekkert á meðan þú situr á rassgatinu og gerir ekkert Wink 

annar finnst mér ég vera orðin ótrúlega fullorðin bara svona allt í einu og það er svolítið scary að hugsa um það sem ég og davíð erum að fara hella okkur út í á næstu mánuðum EN það hlaut að koma að þessu einn daginn ..... bjóst bara ekki við að þetta kæmi alveg strax en þúst ég er mjög ánægð svo... LoL

dagurinn í dag var bara yndislegur þrátt fyrir flensuna og að mamma var næstum óviljandi búin að gleyma mér (hún sendi mér sms sem kom aldrei). LoL mig langar að þakka öllum fyrir allar kveðjurnar og smsin sem ég fékk í dag það var bara yndislegt InLove ég fékk samt bestu gjöf EVER í morgun frá ástinni minni. hann var búinn að þekkja spegilinn inni á baði með póst it miðum, allir með yndislega fallegum skilaboðum ... það var mjög gott að vakna við þessa sjón InLove 

TAKK FYRIR MIG !!


R.I.P

Ástralski leikarinn Heath Ledger fannst látinn í íbúð í Sohohverfi á Manhattan í New York í dag. Ledger var 28 ára gamall.

Crying það er ekkert hægt að segja.... afhverju er heimurinn svona óendanlega grimmur ? ég er farinn að halda að Denis Leary hafi haft rétt fyrir sér þegar hann sagði að það sé alltaf einhverjir virkilega hæfileikaríkir og frábærir sem deyja en fólk eins og t.d. Ben Stiller mun aldrei gera það ... hann verður að enn að gera myndir sem sökka feitar en allt þegar hann er orðinn 90 ára Crying 

þetta er bara ekki hægt ... man eftir því þegar ég og gullý fórum að sjá 10 things i hate about you ... mmmmmmmm....... he so dreamy..... Crying þetta er svo óréttlátt að ég á ekki til aukatekið orð !!!


nú árið er liði í aldanna rás og aldrei það kemur til baka

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

eins og venja og hefði segja til um á maður að gera gamla árið upp so here goes

  • byrjaði og hætti í dagskólanum
  • tók kvöldskólan með trompi og kláraði loksins loksins sögu og stæ ... jeeeiiii Grin
  • við fluttum af Háteigsveginum til mömmu og pabba og þaðan í "okkar eigin íbúð" þar sem við höfum það bara ljómandi gott
  • bæði ég og davíð lentum í árekstri á árinu ... í sitthvoru lagi samt ... sem er annsi vel gert finnst mér Cool
  • fórum á frumsýningu á the number 23 23. feb og davíð fékk töluna 23 á heilan... í korter
  • við skelltum okkur á bíladaga og davíð fannst það svo rómantískt að við trúlofuðum okkur þar 1 kvöldið InLove segiði svo að maðurinn minn sé ekki ekta bílanörd LoL davíð keppti í götumíluni en ég má ekki tala um hvernig gekk GetLost
  • svo eru það auðvitað bílarnir ... á árinu erum við búin að eiga: Golf, Evo, imprezu og Rav og svo auðvitað litla sæta yarisinn minn InLove
  • í ár var í fyrsta skipti sem ég var spennt fyrir evrovission í mörg ár ... var pínu vonsvikin en það gengur bara betur næst ... ætlum við ekki að senda lagið hans Barða núna ?! Woundering
  • við héldum 3 mjög vel heppnuð matarboð
  • allt varð reyklaust ... er ekki alveg búin að ákveða enn þá hvað mér finnst í alvöru um það FootinMouth
  • það voru fleiri póst- og stelpudjömm en ég get talið.... okey kannski ekki en þau voru óendanlega skemmtileg MEXICO LoLLoL
  • vorum stoppuð af löggunni á seinnasta ári og málið látið niður falla ooooooooooojjjjjjjjjjeee take that boðun í skoðun og sekta fólk upp úr þurru mótorhjóla löggu bjáni PoliceBandit
  • við fjölguðum í fjölskyldunni á seinasta ári. við fengum okkur lítinn sætan kisu strák og skírðum hann Loka Mjásmund Disturbed Davíðsson InLove hann sækir, leggur sig í vaskinum, drekkur úr krönum og glösum en aldrei úr dallinum sínum og malar eins og sláttur vél
  • við skiptum um tryggingafélag og keyptum okkur fullt af nýjum fansý tryggingum eins og líftryggingu og e-ð fleira
  • fékk launahækkun
  • héldum fyrstu jólin okkar sjálf og tengdamamma kom í mat
  • davíð útskrifaðist úr skólanum
  • vorum í gærkvöldi hjá mömmu ásamt bróðir mínum og krökkunum hans 2. þaðan fórum við og kíktum aðeins til tendamömmu

 

það kvöddu okkur því miður 3 einstaklingar á árinu og þeirra er og verður mjög sárt saknað EN við fögnuðum líka 3 litlum nýjum einskaklingum í heiminn á þessu ári InLove litlu dúllunni hans Sigga, Ara Gabríel og henni Söru Sigurrós.

það leynast líka bumbubúar á ýmsum stöðum um bæinn hef ég heyrt .... nei ekki hjá mér Wink

annars var árið 2007 bara ágætasta ár. það var auðvitað upp og niður eins og gengur og gerist og við reynum bara að gera betur á þessu ári ekki satt

LoLGrin


Skildi það vera jólahjól

sko ég er bara ekki sátt við þetta blessaða blog.is .... það næsta sem ég kemst jólaþema eru þessu rauðu epli sem eru kannski alls ekki svo slæm þannig en það er varla hægt að segja að þetta sé spes jólaþema sem var það sem ég var að leita að svo.... rauð epli eru þó ótrúlega mikið jóla e-ð fyrir mig þar sem þau voru eiginlega bara keypt á jólunum heima hjá mér... pabba finnst þau vond og ég var of cool til að borða ávexti svo... Cool

ég og davíð ætlum að halda jól sjálf í ár í fyrsta skipti og díses kræst hvað þetta er mikið mál !!!! Crying ég var að gera lista yfir allt sem ég þarf að gera, kaupa og baka og ég fékk vott af kvíðakasti bara að fara yfir þetta allt... þetta er kannski ekkert svakalegt þannig. það er ekki eins og við séum 7 manna fjölskylda en það er samt margt að gera. baka, taka til og þrífa, skreyta, skifa jólakort, kaupa jólaföt og vinna 24/7 allan desember. ég er að vinna hjá póstinum ... það kemur mikið af jólakortum .... mig hlakkar ekki til GetLost EN ég ætla SAMT SAMT SAMT að senda brilljón jólakort sjálf Grin bara af því ég er cool ... þó ég eigi ekki gullskó LoL Bergdís hvað er aftur heimilisfangið þitt ? Tounge

annars þá var ég klára skólann á þriðjudaginn og skila síðasta söguverkefninu svo nú eru það bara prófin eftir ... hlutinn sem hræðir mig mest í heimi Crying EN ég ætla ekki að láta hræðsluna hafa yfirhöndina í ár. ég er tilbúin með slökunardisk, glæný batterý í geislaspilaranum, fullt fullt af grænu tei og ávöxtum. þetta verður ekkert mál en bara svona til að vera 100% þá ekki tala við mig fyrr en eftir 13 des Tounge

ég þurfti að fara að láta taka úr mér endajaxla í seinnustu og þessari viku (ég hef ekki hugmynd af hverju hún gat ekki tekið þá báða í einu en okey) ég labba inn óendanlega stessuð í bæði skiptin því ég hélt að þetta yrði geðsjúklega mikið mál því þetta var frekar mikið mál þegar neðri jaxlarnir voru teknir en nei hún (tannlæknirinn) sannfærir mig um að þetta sé ekkert mál um leið og hún fer ofan í skúffu og nær í sprautuna til að deyfa mig. afhverju þarf hún að vera svona stór ?! fæ gæsahúð bara að hugsa um hana. hún sprautar mig sem var fuck vont í bæði skiptin ... verra samt í morgun, held að hún hafi hitt svona illa á beinið eða whatever í gómnum því ég heyrði brest og ég var alveg viss um að hún hefði brotið nálina en svo virtist ekki vera. svo lætur hún mig bíða og bíða á meðan deyfingin er að virka og svo gerir hún allt sem hún þarf að gera..... já ég veit það meikar sens..... en á meðan sit ég og verð stressaðri og stessaðri með hverri mínútunni sem líður og þegar ég verð stressuð þá þarf ég að kyngja oftar og það virkar kannski ekkert sérlega vel í þessari aðstöðu LoL fyrri tönninni fann ég eiginlega ekkert mikið fyrir þegar hún reyf hana úr þó hún væri komin minna upp en hægra megin en ég heyrði hljóðið þegar brast í henni .. mig langaði og gubba Sick og hún var sko fuck stór en hægri tönnin ..... jesús... hún ætlaði aldrei að ná henni úr hausnum á mér og ég var sko helaum í kjaftinum á eftir og ég fann sko miklu meira fyrir henni..... afhverju ætli það sé ...... hún læddi því að mér eftir fyrsta jaxlinn að það væri nú fyndið að hún hefði verið að segja mér að þetta væri ekkert mál en erfiðasta tönn sem hún hefur nokkurn tíma reynt að draga úr var efri endajaxl hjá pabba... hún gafst upp... svo í morgun sagði hún mér að það væri alveg á hreinu frá hverjum ég erfði tennurnar... ég er farin að halda að ég sé eingetin í föðurætt !!!! frænkur finnst ykkur það stundum líka eða er ég bara crazy ? (það myndi vera í móðurætt hjá ykkur) Woundering

það hefur verið frekar dökkt ský yfir mér undanfarnar vikur og daga... ekkert svosem alvarlegt ... það hefur bara verið að ganga svolítið illa hjá okkur Davíð... allt örugglega e-ð sem við þurftum að díla við fyrir löngu síðan en gerðum aldrei. við eigum það sameiginlegt að vera svolítið gjörn á að sópa hlutunum undir teppið og ef ég á að segja eins og er þá myndi ég segja að það væri einn af mínum verstu göllum. hef verið alltof gjörn á að gera það því það er auðveldara að díla ekki við hlutina en að vera hugrakkur og viðurkenna að e-ð sé að .... og við vitum flest öll hvað þessi aðferð gékk hrikalega vel með daða málið GetLost ég hef samt ákveðið að gera það ekki lengur. ég vil ekki fara aftur í sama farið því ég var komin á frekar hálann ís loksins þegar ég drullaði mér af stað síðast. ég trúi ekki á það sé ein manneskja sem er sköpuð fyrir þig því mér finnst það persónulega bara of niðurdrepandi tilhugsun.... hvað ef manneskjan sem er sköpuð fyrir þig deyr ? hvað þá ? ertu þá bara dæmdur til að vera einn eða óhamingjusamur það sem eftir er ? ég er heldur ekkert svo viss um að ég trúi á sálufélaga... allavega finnst mér persónulega það næst því sem nokkur kemst að vera "sálufélagi minn" eru skvísurnar mínar .... því þær skilja mig og einhvern veginn get ég alltaf fengið nákvæmlega það sem ég þarf frá þeim.... ekki kannski það sem ég vil en það sem ég þarf ... og ég veit líka að ef allt færi í klessu þá myndu þær vera til staðar fyrir mig. en þó svo að ég trúi ekki á þessu hluti þá veit ég að ég og Davíð eigum e-ð mjög sérstakt ... ég vil trúa því að við séum betri saman en í sundur og að við höfum góð áhrif á hvort annað.. ég trúi á okkur þó svo að enginn annar geri það Smile hann er ástin mín og hann gerir hluti eins og að láta mig horfast í augu við hver ég er og hvað ég er að gera sama hversu sársaukafullt það er .. það hef ég aldrei upplífað áður. mér finnst eins og  það sé að birta til og eins og allt eigi eftir að vera allt í lagi... það eru að koma jól eftir allt saman Tounge

annars nenni ég ekki meir svo njótið þess að vera til og ef þið nauðsynlega þurfið þess ekki eins og ég af því það vill enginn heilvita maður vinna í póstinum ekki vinna yfir ykkur fyrir jólin. njótið þess að plana og gera saman og dúlla ykkur ... það er bara of gott að dúlla sér með fólkinu sínu í skammdeginu InLoveLoL


I will folow you into the dark

mmmmmmmmmmmm ............ hvað það er gott að vera búin að vinna og vera komin heim Smile ég og Loki erum að kúra saman við tölvuna og horfa með öðru auganum á Simpson og mala í kór ... svona á lífið að vera Tounge kallinn í vinnunni og ég og "litla barnið" heima að hafa það gott..... haldiði að það sé Wink

ég pæli mikið og ég held að það fari ekki framhjá neinum sem þekkir mig að stundum get ég pælt hlutina alveg í kaf. ég á það líka til að reyna að fara yfir ána svona 15 km áður en ég kem að henni sem er gjörsamlega glatað hvernig sem á það er litið. þú finnur ekki bílastæði í kringlunni fyrren þú ert komin á staðinn.... úff stundum get ég gert sjálfa mig gráhærða LoL eins og t.d. með að eignast börn nú á ég nokkra vini sem hafa orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast lítil kríli, fyrir rétt rúmum mánuði kom t.d. hún Sara Sigurrós í heiminnInLove sem er dóttir hennar Elsu vínkonu og Hemma mannsins hennar og það bregst ekki að í hvert skipti sem þau fæðast eða maður fréttir að nú sé von á kríli fer hausinn á mér á fullt. hvernig ætli mín börn eigi eftir að lýta út, haga sér, ætli þau verði erfiðir unglingar, ætli þau lendi inn á háskalegum slóðum í lífinu, hvernig fyrirmynd ælti ég verði fyrir þau og svo mætti sko svo endalaust telja..... svo núna er ég að lenda í því að vera að vinna með svona manneskju eins og mér sem pælir endalaust í öllu á milli himins og jarðar ... og mikið get ég stundum orðið þreytt á henni ... hehehehehe LoL um daginn fór heill klukkutími í að pæla í því hvort það væri e-ð líkt að eignast barn í alvöru og í bíómynd.... ég setti ipodinn minn á fullt Cool

jólin eru að koma og það VAR kominn pínu snjór heima hjá mér í sveitinni Tounge og það er ekki laust við að það hafi verið kominn pínu jólafílingur í kerlinguna .... svo fór ég í smáralindina og sá að jólaskrautið var komið upp og þá hvarf jólaskapið og ég varð bara pirruð GetLost ég skil ekki afhverju við þurfum alltaf að drífa okkur svona mikið með þetta blessaða jólaskraut og þessi jólalög !! í alvöru það eru allir komnir með hundleið á þessu löngu fyrir jól. hvernig væri að við myndum bíða fram í byrjun desember ? myndi það drepa einhvern ? jólatilboð og jóla þetta og hitt í október finnst mér bara einfaldlega ekki passa. það er ekki einu sinni kominn vetur for crist sakes !!!!!!!!!!!! Devil allavega fyrst það er komið jóla e-ð þá hef ég ákveðið að jólaátakið mitt hefjist á morgun fyrsta nóvember... ætla reyna eins og ég get til að taka mig saman í andlitinu fram að jólum ... ekkert svindl Police ég ætla að gera mitt besta og reyna að vera jákvæð Grin

ég var að horfa á kompás í gær um þroskahefta manninn á sogni og mig langar bara að vita hvernig þessi möppudýr geta réttlætt það fyrir sjálfum sér og öðrum að hafa þroskaheftan mann í vistun með geðveiku fólki ? þetta er 2 algerlega algerlega ólíkt. hvernig á  hann að falla í hópinn ? ég bara gat ekki annað en hrist hausinn yfir þessu öllu saman. 15 ár á kolvitlausum stað og hvað gera ráðamenn ? benda hver á annan og þykjast ekkert geta gert fyrir hann. þetta er 1 maður en ekki heil herdeild !!!!!!!! hvernig er ekki hægt að finna einum manni hentugri vistun á 15 árum ?? vá hvað það þarf að fara að stokka upp í þessu samfélagi hjá okkur. hvenær ætlum við að standa upp og láta þessu möppudýr sem vinna fyrir okkur btw finna fyrir því ?? hvenær ætlum við íslendingar að hætta að láta taka okkur í ósmurðan analinn ???? (afsakið orðbragðið). *andvarp*

svo eru það blessaðir fjölmiðlarnir ... maður fer að halda að fjölmiðlarnir hér séu að taka bandaríkjamenn sér til fyrirmyndar og mér persónulega finnst það hryllileg þróun. það sem skiptir mestu máli er að selja blöð. eins og til dæmis með fáskrúðsfjarðarmálið, það var heil grein um það hverjir þessir blessuðu ógæfumenn þetta væru sem hefðu staðið á bakvið þetta smygl. það voru full nöfn á mönnunum, hvernig þeir tengdust,hvað þeir kynntust, hver gæslustaða þeirra er í dag (einangrun eða lausagæsla) og liggur við bara ævisagan þeirra öll ... það eina sem vantaði var skónúmer og farsímanúmer ... er þetta ekki orðið svolítið gott ? er ekki nóg að við vitum að lögreglan hafi náð mönnum sem hafi æltað að smygla inn eiturlyfjum ? er aldrei hægt að hugsa um að þessir menn eiga fjölskyldur ? mömmur og pabba og systkini sem þurfa að fara í vinnu og skóla og vita að allir í kring um það er smjattandi á þessu. mér leið bara illa fyrir hönd þessa fólks.

annars hef ég ekkert verið að pæla meira svo

 smell ya later

W00t


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband